Ágúst Kvaran

Móttekin: 26. febrúar 2003 - Vefútgáfa: 4. júní 2003

Ágrip

Hagkvæm nýting efna í hvers kyns efnaiðnaði byggir á skilningi á eiginleikum þeirra. Eiginleikar efna ráðast af gerð efnisagnanna. Greint er frá aðferðafræði við litrófsgreiningu sameinda í þeim tilgangi að afla upplýsinga um eiginleika þeirra. Þá er fjallað um þróun aðferða við mælingar og túlkanir litrófa sameinda, sem fram fer við Háskóla Íslands.

pdf sækja grein (pdf) [raust.is/2003/1/02/]